Skilmálar RMK ehf.
Hér á eftir fara skilmálar um viðskiptakjör RMK ehf, hér eftir nefnt RMK. Skilmálar þessir gilda um öll viðskipti RMK og viðskiptamanna fyritækisins, nema um annað sé sérstaklega samið. Skilmálarnir eru órjúfanlegur hluti samningsaðila um vöru og/eða þjónustuviðskipti.
Tilboð
Með formlegu samþykki viðskiptamanns á tilboði RMK er kominn á samningur um viðskipti. Formlegt samþykki telst undirritun samnings eða samþykki með tölvupósti eða öðrum sannanlegum hætti. Í tilboði skal koma fram tegund vöru, verð, magn, afhendingartími og gildistími tilboðs. RMK skilgreinir gildistíma tilboðs og er óbundið af því hafi tilboðið ekki verið staðfest með sannanlegum hætti áður en það rann út.
Afhendingartími
Dragist vöruafhending til viðskiptamanns vegna orsaka sem ekki verða raktar til RMK, svo sem tafa á flutningum, verkfalla og annarra orsaka, telst RMK ekki skaðabótaskylt.
Pantanir
Vara og þjónusta sem keypt er hjá RMK fellur undir skilmála þessa eftir að RMK hefur fallist á pöntun viðskiptamanns með því að:
Staðfesta pöntun viðskiptamanns með samningi eða öðrum sannanlegum hætti
Inna af hendi tilgreinda þjónustu fyrir viðskiptamanna
Samningur
Samningur telst vera kominn á um viðskipti milli RMK og viðskiptamanns þegar viðskiptamaður hefur staðfest gefið tilboð með sannanlegum hætti.
Ef samningur felur í sér pöntun á merktum vörum ber viðskiptamaður allan kostnað og ábyrgð af hönnun á merkingum varanna, nema um annað sé samið. Áður en framleiðsla hefst skal viðskiptamaður samþykkja próförk frá RMK innan þriggja daga frá móttöku hennar. Við samþykki prófarkar hefst framleiðsla vörunnar og upphaf afhendingartíma.
Verð
Gjöld fyrir vöru og þjónustu RMK eru sérverð sem tilgreind eru í samningi hverju sinni.
Hjá RMK er um að ræða eftirfarandi greiðsluform fyrir vöru og þjónustu nema um annað sé samið:
Við pöntun skal greiða 50% af heildarupphæð samnings, sem er óafturkræf upphæð, og eftirstöðvar á gjalddaga 4 dögum eftir afhendingu varanna, eigi síðar en á eindaga 14 dögum eftir afhendingu varanna. Eftir þann tíma áskilur RMK sér rétt til að krefja viðskiptamann um dráttarvexti af ógreiddri peningakröfu frá og með gjalddaga fram að greiðsludegi samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001.
Með formlegu samþykki viðskiptamanns á tilboði og greiðslu sem nemur 50% af heildarupphæð samnings hefur viðskiptamaður skuldbundið sig til að greiða eftirstöðvar heildarupphæðar samnings. Hætti viðskiptamaður við pöntun eftir að hann hefur greitt 50% af heildarupphæð samnings, áskilur RMK sér rétt til að krefjast fullnaðargreiðslu samkvæmt samningi hafi fyrirtækið orðið fyrir tjóni sem sýnt er fram á með sannanlegum hætti.
Innifalið í verði eru allir flutningar, tollar og gjöld að meðtöldum virðisaukaskatti.
Ábyrgð
RMK ber seljandaábyrgð á vörum sem fyrirtækið hefur selt viðskiptamönnum sínum. Skulu vörurnar ávallt afhendast viðskiptamönnum í samræmi við gerða samninga. Sé um að ræða framleiðslugalla á vörum telst RMK ábyrgðaraðili. Kvörtun vegna gallaðrar vöru skal berast um leið og gallans verður vart. Kaup á vörum frá RMK er háð lögum um lausafjárkaup, nr. 50/2000 og skilmálum fyrirtækisins eftir því sem við á.
Í öllum tilvikum, þar sem galli kemur fram á vörum, miðað við þær skuldbindingar sem um hefur verið samið, á viðskiptamaður rétt á því að fá afhentar nýjar vörur í samræmi við upphaflega samninga. RMK undanskilur sig ábyrgð á öllu óbeinu eða afleiddu tjóni, svo sem glötuðum ágóða, eða öðru tjóni svo og ef vörur glatast eða týnast eftir að vara var tilbúin til afhendingar og kaupanda var kunnugt um, af hvaða ástæðum sem er.
Trúnaður
Samningar á milli RMK og viðskiptamanna er trúnaðarmál samningsaðila.
Lög og varnarþing
Rísi ágreiningur um málefni samningsins eða viðskiptin að öðru leyti skal farið að íslenskum lögum við lausn ágreinings. Ef mál verður höfðað skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.
Skilmálar RMK ehf. taka gildi 1. nóv. 2014.
